Tenglar

5. apríl 2011 |

Hætt við niðurskurð á Dvalarheimilinu Barmahlíð

Frá fundi ríkisstjórnarinnar með sveitarstjórnarfólki. Mynd bb.is.
Frá fundi ríkisstjórnarinnar með sveitarstjórnarfólki. Mynd bb.is.
1 af 2
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum á Ísafirði í dag, að starfsemi Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar á Reykhólum verði varin og dvalarrýmum ekki fækkað, eins og áður hafði verið ákveðið. Þetta er eitt af sextán verkefnum varðandi verndun og eflingu byggðar og atvinnusköpun á Vestfjörðum, sem ríkisstjórnin samþykkti á þessum fundi, sem hófst kl. 14. Fyrir hádegi hélt ríkisstjórnin fund með vestfirsku sveitarstjórnarfólki. Auk þess kynntu ráðherrarnir sér starfsemi mennta-, atvinnuþróunar- og rannsóknastofnana.

 

Hér má lesa í heild tilkynningu forsætisráðuneytisins um eflingu atvinnu og byggðar á Vestfjörðum.

 

Athugasemdir

Einar Örn Thorlacius, fyrrv.sveitarstjóri, mivikudagur 06 aprl kl: 08:14

Til hamingju með þetta íbúar Reykhólahrepps!

Helga Játvarðardóttir, mivikudagur 06 aprl kl: 08:57

Til hamingju með það kæru sveitungar

Sig.Torfi, mivikudagur 06 aprl kl: 10:35

Til hamingju, en með þessu útspili vonast auðvitað Steingrímur og Jóhanna eftir því að íbúar Reykhólahrepps verði "jákvæðir" næstkomandi laugardag...

Hanna Lára, mivikudagur 06 aprl kl: 10:57

Til hamingju :) frábært að heyra .

Eyrún Guðnadóttir, fstudagur 08 aprl kl: 00:21

Til hamingju kæru felagar núna er óvissuni eitt og núna er hætt að halda upp á það

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« September 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30