Tenglar

5. maí 2011 |

Hætt við sameiningu lögregluembætta

Fallið hefur verið frá áformum um sameiningu lögregluembætta á Vesturlandi og Vestfjörðum í eitt, að því er fram kemur á vef Skessuhorns. Þess í stað verða eingöngu embættin á Vesturlandi sameinuð. Lögreglufélag Vesturlands fagnar þessari niðurstöðu. Í nýjum drögum Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra í frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum er hins vegar hvergi að finna eftirlaunapakkann sem hann hafði lofað lögreglumönnum. Í ályktun Lögreglufélags Vesturlands er lýst yfir áhyggjum af þessu. Þar segir að ráðherrann hafi sagt að frumvarp um fækkun og stækkun lögregluembætta yrði ekki lagt fram nema með þeim eftirlaunapakka sem lögreglumönnum hafi verið lofað.

 

Félagsmenn hafa einnig áhyggjur af þeirri auknu hagræðingarkröfu sem boðuð er í frumvarpinu og telja að sú hagræðing muni bitna á fjölda lögreglumanna, launum þeirra og starfsframa. Telja þeir að ekki megi, í nafni hagræðingar, rústa þeim launa- og starfsstigaþrepum sem lögreglumenn hafa áunnið sér.

 

Vefur Skessuhorns

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31