Tenglar

15. desember 2009 |

Hætta á svelli vegna vatnsúða frá Gautsdalsá

Bálhvasst var á vígsludeginum og úðastróka lagði yfir nýja veginn. Ljósmynd: Framkvæmdafréttir.
Bálhvasst var á vígsludeginum og úðastróka lagði yfir nýja veginn. Ljósmynd: Framkvæmdafréttir.
Nýi vegurinn um Gautsdal milli Reykhólahrepps og Strandasýslu liggur nálægt gljúfurbarmi þar sem Gautsdalsá fellur í fossi. Þegar vindurinn nær sér vel upp í gljúfrinu í vestanátt er hætt við að hann feyki upp vatnsstrók sem leggst yfir veginn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem tekin var á vígsludegi vegarins. „Það er ekki laust við að menn hafi áhyggjur af afleiðingunum er svona ástand skapast í frosti. Þá gæti myndast þarna hættulegt svell þar sem vegurinn er í nokkurri brekku. Reyndar hefur verið bent á að þíða fylgi gjarnan vestanátt á þessum slóðum og að áin sé vatnslítil í frosti. Engu að síður er ljóst að vel þarf að fylgjast með þessu svæði í svona veðurfari“, segir í nýjum Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar.

 

Eins og kunnugt er opnaði Kristján L. Möller samgönguráðherra formlega nýja veginn milli Reykhólasveitar og Hólmavíkur þann 14. október. Vegurinn liggur frá Vestfjarðavegi skammt vestan við Geiradalsá í Króksfirði um Gautsdal, yfir Þröskulda, um Arnkötludal og að gamla þjóðveginum í Steingrímsfirði.

 

Þessi vegur telst hluti Djúpvegar (61) en vegurinn sem áður var Djúpvegur, suður Strandir í Hrútafjörð, mun fá heitið Innstrandavegur og númerið 68. Þetta er breyting frá því sem kom fram í síðasta tbl. Framkvæmdafrétta en þá var talið að sá vegur fengi nafnið Hólmavíkurvegur.

 

Sjá einnig:

Hressilegur blástur við borðaklippingu

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31