20. apríl 2011 |
Hættuspil á sorpsvæðinu á Reykhólum
Maður nokkur hafði samband út af alvarlegu atviki á sorpsvæðinu neðan við Reykhólaþorp. Hann fór þangað með rusl og þá var lítill drengur kominn ofan í járnagáminn og var þar að dunda sér. Naumast hefði verið að sökum að spyrja hefði einhver komið með járnarusl í gáminn og ekki séð barnið. Þess vegna skulu foreldrar og forráðamenn hvattir til að gæta þess að börnin séu ekki að leik á sorpsvæðinu.