Tenglar

5. maí 2020 | Sveinn Ragnarsson

Hafnaframkvæmdir í Reykhólahreppi

Reykhólahöfn, mynd af vef Vegagerðarinnar
Reykhólahöfn, mynd af vef Vegagerðarinnar
1 af 6

Þessa dagana er verið að dýpka Reykhólahöfn. Verktaki er Hagtak hf.

 

Að þessu sinni er aðallega verið að halda við innsiglingunni og fjarlægja efni sem sjórinn ber í rennuna og höfnina jafnt og þétt, núna eru 2 höft í rennunni.  Efninu, sem er mestu sandur og leir, er mokað upp í pramma sem flytur það út á dýpi, utan siglingaleiða. Pramminn tekur 150 m3  í ferð.

 

Þeir hjá Hagtaki reikna með að verkið taki um 3 vikur, en veður getur sett strik í reikninginn. Hingað að Reykhólum komu þeir með prammana frá Arnarstapa á Snæfellnesi, þar sem unnið var að töluvert mikilli dýpkun í vetur, en bátum hefur fjölgað þar og þeir stækkað.

 

Samkvæmt verk- og kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar er kostnaður við verkið um 36.7 milljónir kr. Hlutur hafnarsjóðs Reykhólahrepps er 10% af þeirri upphæð, en 90% eru greidd úr Hafnabótasjóði.

 

Flateyjarhöfn

Þann 21. apríl voru opnuð tilboð í stækkun ferjubryggju í Flatey og byggingu sjóvarnargarðs. Í verkið bárust 2 tilboð, bæði vel yfir áætluðum verktakakostnaði Vegagerðarinnar sem var tæpar 36 millj. Ístak hf. í Mosfellsbæ bauð 74.1 millj. og Bryggjuverk ehf. Í Keflavík 44.7 millj. Þegar svo mikið ber í milli tilboða og kostnaðaráætlunar er hætta á töfum við verksamninga en vonandi finnst lausn á því fljótt. Hér er um brýnar endurbætur að ræða, sem dregist hafa um árabil.

  

Atburðadagatal

« gst 2026 »
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31