Tenglar

14. maí 2014 | vefstjori@reykholar.is

Hagnaður af rekstri OV níunda árið í röð

Orkubúsmaður að störfum. Ljósm. OV.
Orkubúsmaður að störfum. Ljósm. OV.

Árið 2013 varð hagnaður af venjubundnum rekstri Orkubús Vestfjarða níunda árið í röð. Framleiðsla vatnsaflsvirkjana Orkubúsins var með minna móti sökum tíðarfarsins eða rúmar 84 GWh. Í aftakastormi síðustu daga janúar brotnuðu flutningslínur og urðu verulegar truflanir í flutnings- og dreifikerfi raforku. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kristjáni Haraldssyni orkubússtjóra, en aðalfundur fyrirtækisins var haldinn á Ísafirði á föstudag. Einnig segir í tilkynningunni:

 

Samkvæmt rekstrarreikningi ársins 2013 varð hagnaður af venjubundnum rekstri fyrir skatta, sem nam um 278,5 mkr., en þegar tekið er tillit til tekjuskatts er hagnaður ársins um 222,9 mkr. Afskriftir námu alls 240 mkr. Eignir Orkubús Vestfjarða ohf. í árslok 2013 voru alls 6.505 mkr. og heildarskuldir alls 983 mkr. Eigið fé nam því alls 5.522 mkr. sem er um 84,9% af heildarfjármagni.

 

Á árinu 2013 var 681 mkr. varið til fjárfestinga, þar af voru tengigjöld og vinna greidd af öðrum 27,5 mkr. Fjárfestingar ársins voru að mestu kostaðar af eigin fé fyrirtækisins eða greiddar af þeim sem þeirra óskuðu.

 

Í lok febrúar 2014 tilkynnti Landsvirkjun að skerða þyrfti raforku inn á hitaveitukatla Orkubús Vestfjarða í mars og apríl sökum lágrar vatnsstöðu í lónum. Orkubú Vestfjarða þurfti því að nota olíu til að kynda hitaveituna þennan tíma og varð viðbótarkostnaður fyrirtækisins um 200 millj. kr.. Með vísan til framanskráðs lagði stjórn Orkubús Vestfjarða til á aðalfundi, að ekki yrði greiddur arður heldur yrði hagnaður ársins 2013 lagður við höfuðstól og nýttur til að mæta framangreindum viðbótarkostnaði.

 

Í stjórn Orkubús Vestfjarða ohf. voru kjörin:

  • Viðar Helgason, Reykjavík
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, Tálknafirði
  • Daníel Jakobsson, Ísafirði
  • Viktoría Rán Ólafsdóttir, Hólmavík
  • Árni Brynjólfsson, Önundarfirði

Nýkjörin stjórn kom síðan saman til fundar og skipti með sér verkum. Viðar Helgason var kjörinn formaður stjórnar, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir var kjörin varaformaður stjórnar og Viktoría Rán Ólafsdóttir var kjörin ritari stjórnar.

 

Sjá einnig:

Stórkostlegar vetrar- og ísingarmyndir af hálendinu

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Desember 2024 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31