Tenglar

24. september 2009 |

Háhraðanettengingar í Reykhólahreppi í nóvember

Áætlað er að sala á háhraðanettengingum byrji víðast um Vestfjarðakjálkann og þar á meðal í Reykhólahreppi í nóvember. Í þeim áfanga verkefnisins sem á að verða lokið í þeim mánuði eru sveitarfélögin Ísafjarðarbær, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur og Súðavíkurhreppur. Þetta kemur fram í verkáætlun Símans vegna háhraðanetssamnings við Fjarskiptasjóð. Verkefnið byggist á því markmiði fjarskiptaáætlunar samgönguráðuneytis að gefa öllum landsmönnum sem þess óska kost á háhraðanettengingu.


Háhraðaverkefni Fjarskiptasjóðs hófst formlega í febrúar síðastliðnum með undirritun samnings sjóðsins fyrir hönd samgönguráðuneytisins og Símans sem átti hagkvæmasta tilboðið í verkefnið. Samið var um tengingu rúmlega 1700 heimila og fyrirtækja víðs vegar um land og eru áætluð verklok í árslok 2010. Uppbygging á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi nýtur forgangs í verkáætlun.

Mismunandi tækni er notuð til að tengja hvern stað en hraði hverrar tengingar er m.a. háður tækninni og fjarlægð staðar frá sendistöð. Tengingar í boði með 3G-kerfi Símans verða 1Mb/s - 2Mb/s fram að verklokum. Eftir það verður boðið upp á pakka með meiri hraða. ADSL-tengingar verða í boði þar sem hentugt verður að koma þeim við. Notuð verður gervihnattatækni í nokkrum undantekningartilvikum þar sem erfitt verður að koma við hefðbundnum aðgangsnetum.

Símanum ber að bjóða íbúum þjónustu. Ráðuneytið segir að þess sé vænst að aðrir söluaðilar netþjónustu bjóði íbúum einnig þjónustu enda standi það öllum söluaðilum til boða.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31