Haldiði að það sé munur?
Aðkoman inn í Reykhólaþorp tók ótrúlegum breytingum á örfáum dögum áður en Reykhóladagar gengu í garð. Fyrir stuttu var „allt í hers höndum“, fólk og vélar á fullu og ótótlegt um að litast, umrót og moldarhaugar hér og þar. Núna er búið að steypa gangstéttar, koma minnismerki Jóns Thoroddsens á sinn nýja stað á torginu nýja, þökuleggja að mestu flagið mikla sem var þar hjá og gróðursetja bæði trjáplöntur og blóm.
Fyrsta myndin sem hér fylgir var tekin í dag, mynd nr. 2 var tekin í fyrradag og mynd nr. 3 fyrir nokkrum dögum.
Haldiði að það sé munur? mætti segja eins og Árni Tryggvason leikari í sjónvarpsauglýsingunni frægu fyrir nokkrum áratugum, þegar hann var loksins kominn með sæng frá Dún- og fiðurhreinsuninni við Vatnsstíg.
Umsvif í umhverfismálum á Reykhólum
Róttækar breytingar á umhverfi Barmahlíðar
Einar Örn Thorlacius fyrrv. sveitarstjóri Reykhólahrepps, fstudagur 22 jl kl: 14:50
Glæsilegt!