11. júlí 2013 | vefstjori@reykholar.is
Halldóra Guðjónsdóttir jarðsungin á laugardag
Halldóra Guðjónsdóttir frá Gröf í Þorskafirði, sem andaðist í Barmahlíð á Reykhólum 4. júlí, verður jarðsungin í Reykhólakirkju á laugardag, 13. júlí. Athöfnin hefst kl. 14. Boðið er til erfisdrykkju í íþróttahúsinu að henni lokinni. Blóm eru afþökkuð en þeir sem vilja minnast hinnar látnu eru beðnir um að láta Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð njóta þess.