1. mars 2012 |
Hallgrímur á Skálanesi jarðsunginn á laugardag
Hallgrímur V. Jónsson.
Hallgrímur V. Jónsson, bóndi á Skálanesi í Gufudalssveit, sem andaðist á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum 23. febrúar, verður jarðsunginn í Reykhólakirkju kl. 14 á laugardag. Hann verður jarðsettur í Reykhólakirkjugarði.