Tenglar

28. apríl 2010 |

Hamingjudagar á Hólmavík kynntir

Frá kökuhlaðborði á Hamingjudögum.
Frá kökuhlaðborði á Hamingjudögum.
Í þessari viku eru haldnir kynningarfundir um Hamingjudaga á Hólmavík. Opinn fundur verður í Félagsheimilinu á Hólmavík í kvöld, miðvikudagskvöldið 28. apríl kl. 19.30. Verður sá fundur hugarflugsfundur þar sem leitað verður eftir hugmyndum og lausnum frá viðstöddum. Einnig verða kynntar þær hugmyndir og ákvarðanir varðandi Hamingjudaga sem þegar liggja fyrir. Reiknað er með að þessum fundi ljúki kl. 21 svo það er um að gera að leyfa yngri kynslóðinni að mæta líka og færa fram sínar hugmyndir.

 

Í hádeginu á morgun verða Hamingjudagar svo kynntir á vikulegum súpufundi Þróunarsetursins og Arnkötlu sem haldinn er á Café Riis og hefst kl 12. Þar verður sömuleiðis almenn kynning á Hamingjudögum og leitað eftir hugmyndum og umræðum. Súpufundurinn er að venju sendur út í gegnum netviewer.

 

strandabyggd.is

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31