15. júní 2012 |
Handverks-, bóka- og nytjamarkaðurinn í Nesi opnaður
Handverksfélagið ASSA í Reykhólahreppi opnar markað sinn í Kaupfélagshúsinu í Króksfjarðarnesi kl. 13 á morgun, laugardag. Eins og áður er hér ekki einungis um handverksmarkað að ræða heldur einnig bóka- og nytjamarkað. Opið verður alla daga í sumar kl. 13-18 og jafnframt verður tekið á móti bókum sem og munum á nytjamarkaðinn á þeim tíma.
Frekari upplýsingar gefa Sóley Vilhjálmsdóttir, Sveinn Ragnarsson og Erla Björk Jónsdóttir.
Sjá einnig:
► 02.01.2012 Assa útdeilir ágóðanum
► 04.06.2011 Handverkssalan á síðasta ári hálf önnur milljón