17. júní 2014 | vefstjori@reykholar.is
Handverksfélagið Assa opnar markaðinn í Nesi
Assa opnar handverksmarkaðinn sinn í Króksfjarðarnesi í dag, þjóðhátíðardaginn 17. júní, og verður hann opinn alla daga í sumar kl. 12-18. Nytja- og bókamarkaðurinn er á sínum stað. Vöfflur og kaffi um helgar, allt eins og áður. Einnig verður hittingur á þriðjudögum kl. 15.30-17.
Stjórn Össu býður alla velkomna að njóta þess sem er í boði.
Handverksfélagið Assa á Facebook
► 21.06.2013 Fólk segir bara hvað það vill borga