20. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Handverkshátíð 2014 í Eyjafirði
Handverkshátíðin á Hrafnagili í Eyjafirði verður haldin í 22. sinn 7.-10. ágúst í sumar en frestur til að sækja um þátttöku rennur út 1. apríl. Úr umsóknum eru valdir ríflega hundrað sýnendur, bæði lærðir og leikir af öllu landinu, sem þarna sýna og selja handverk sitt og hönnun. „Stemmningin á sýningarsvæðinu er einstök, það sanna þær 15-20 þúsund heimsóknir sem sýningin fær nú árlega,“ segir í tilkynningu.
Umsóknareyðublað og allar nánari upplýsingar má finna á www.handverkshatid.is.