Tenglar

11. maí 2018 | Sveinn Ragnarsson

Handverksmarkaðurinn í Nesi opnaður

Handverksmarkaður Össu í Króksfjarðarnesi verður opnaður á morgun, laugardag 12. maí. Þarna verður að venju fjölbreytt handverk, lopapeysur í miklu úrvali, munir úr tré, gleri, skartgripir, myndir og er þá fátt eitt talið.

Eins og áður er bókamarkaðurinn í gangi, Arnarsetrið á sínum stað og hægt að kaupa kaffiveitingar á vægu verði.

Opið alla daga frá kl. 11 - 18.

Allir hjartanlega velkomnir.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31