10. maí 2019 | Sveinn Ragnarsson
Handverksmarkaðurinn opnaður á morgun 11. maí
Handverksmarkaður Össu í Króksfjarðarnesi verður opnaður á morgun, 11. maí kl. 10.
Opið verður alla daga í sumar milli kl. 10 og 18. Að venju er fjölbreytt handverk á boðstólum og úrvalið hefur aldrei verið meira.
Kaffiveitingar verða til sölu á hóflegu verði eins og áður.
Á meðfylgjandi myndum er sýnishorn af vörunum.