Tenglar

1. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is

Harðar langlokur á Reykhólum

Gámurinn við Hólakaup í morgun.
Gámurinn við Hólakaup í morgun.

Á þessu ári eru 50 ár liðin frá því að Harðarbakarí á Akranesi var stofnað, en fyrirtækið er landsþekkt fyrir Harðar brauð og Harðar kökur. Í tilefni afmælisins er hafin framleiðsla á langlokum sem eru lengri en almennt gerist eða 36 fet og standa því vel undir nafni. Aðstaða fyrir þennan plássfreka bakstur var fengin í húsakynnum Sementsverksmiðjunnar á Akranesi og e.t.v. eitthvað af hráefninu líka.

 

Í morgun kom á Reykhóla gámur með þessum Harðar King Size Limited Special Anniversary Edition Texas Style Langlokum eins og þær heita fullu nafni - skammstafað með langlokunni H.K.S.L.S.A.E.T.S.L. Gámurinn verður við verslunina Hólakaup fram eftir degi eða meðan birgðir endast, en af skiljanlegum ástæðum kemst varan ekki fyrir inni í búðinni.

 

Harðar langlokur eru seldar óskornar. Viðskiptavinir geta pantað aðstoð hjá Steinsögun Gústafs Jökuls Ólafssonar.

 

Auður djúpúðga flutningabílstjóri hjá KM-þjónustunni í Búðardal segir að gámurinn sé meðal þeirra allra lengstu hérlendis. M.a. hafi hann verið notaður til að flytja ræður Hjörleifs Guttormssonar og fleiri alþingismanna. Þannig er þetta ekki í fyrsta sinn sem hann er notaður undir langlokur.

 

Athugasemdir

Eyvindur, mnudagur 01 aprl kl: 17:23

og nú toppar vefstjórinn sig. Snilld.

Guðmundur Sveinbj. Ingimarsson, mnudagur 01 aprl kl: 21:46

Þetta er bara of gott! Ánægður með skammstöfunina, gríðarlega einföld :)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31