10. júní 2013 | vefstjori@reykholar.is
Harmonikuhátíð fjölskyldunnar um næstu helgi
Harmonikufélagið Nikkólína í Dalabyggð og Reykhólahreppi minnir fólk á Harmonikuhátíð fjölskyldunnar, sem haldin verður á Laugarbakka í Miðfirði um næstu helgi eða dagana 14.-16. júní. Auk Nikkólínu standa Harmonikuunnendur í Húnavatnssýslum að þessari hátíð. Dansað verður bæði á föstudagskvöld og laugardagskvöld með góðum hljómsveitum. Kaffihlaðborð og skemmtidagskrá á laugardeginum.
Nánari upplýsingar gefa Ásgerður (434 1502 og 866 5799) og Sólveig (452 7107 og 856 1187).