Tenglar

8. apríl 2015 |

Harmonikuheimsókn í Barmahlíð

Harmonikumeistarinn gamalkunni Halldór Þ. Þórðarson í Búðardal ætlar að koma í heimsókn á dvalarheimilið Barmahlíð á Reykhólum klukkan 16 á morgun, fimmtudag, og spila létta músík. Jóhanna Ösp Einarsdóttir tómstundafulltrúi beinir því til fólks í héraðinu, kannski helst þeirra sem komnir eru af allra léttasta skeiði, hvort ekki væri gaman að koma og dilla sér við harmonikuleikinn.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31