Harpa frá Stað ráðin í nýja stöðu ferðamálafulltrúa
Harpa Björk Eiríksdóttir er tæplega 29 ára að aldri. Hún ólst upp á Stað til sextán ára aldurs. Þá fór hún sem skiptinemi til Þýskalands eitt ár en settist svo að í Reykjavík vegna náms og vinnu. Fyrir jólin 2004 lauk Harpa stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla, félagsmálabraut, og var næsta árið aðstoðarverslunarstjóri hjá 10-11 í Kópavogi. Hún fór í Leiðsögumannaskólann og var síðan tvö sumur fararstjóri hjá Íshestum í Gullna hringnum, sem eru sex daga hestaferðir um Suðurland.
Haustið 2007 fluttist Harpa út til Derby á Englandi ásamt kærasta sínum, Gunnari Þór Reynissyni úr Keflavík, sem þá var að byrja í mótorsportverkfræði við háskólann þar. Yfir sumartímann var Harpa heima á Íslandi, vann við hestaferðir hjá Svaðilfara í Ísafjarðardjúpi og aðstoðaði sitt fólk á Stað í sauðburði og smalamennskum. „Ég er mikil sveitamanneskja í mér og þó að nær þrettán ár séu liðin síðan ég flutti að heiman á ég ennþá kindur, kú og hesta heima í sveitinni“, segir hún.
Á síðasta ári fluttust þau Harpa og Gunnar Þór til Oxford á Englandi, þar sem hún byrjaði í ferðamálanámi við Oxford Brookes háskólann. Gunnar Þór er núna að ljúka meistaraprófi í hönnun kappakstursvéla við sama háskóla.
„Á öðru ári eigum við að fara í verknám sem tengist ferðamennsku og mér fannst mjög áhugavert og skemmtilegt að komast heim í sveitina mína og byggja upp og efla þá ferðamennsku sem þar er fyrir“, segir hún.
„Ég veit að þetta verður verðugt verkefni og hlakka til að takast á við það. Gaman verður að geta hjálpað ferðaþjónum á svæðinu og öðrum sveitungum að kynna þá frábæru náttúru og afþreyingu sem héraðið býr yfir. Mitt fyrsta verkefni verður að koma upp heimasíðu um ferðamál í Reykhólahreppi og vonast til að fá hugmyndir og skemmtilega texta frá sveitungum um okkar frábæru sveit. Ég kem heim í sveitina í lok maí og mæti formlega til starfa 1. júní en þó mun ég áður vinna að verkefnum sumarsins héðan frá Oxford. Ég veit að það er spennandi ár framundan.“
Þeir ferðaþjónar og aðrir sem vilja hafa samband við Hörpu vegna hins nýja starfs geta sent henni tölvupóst. Allir sem hafa einhverjar hugmyndir og tillögur eru hvattir til að gera það.
Hanna Lára, mivikudagur 23 febrar kl: 09:24
Frábært til hamingju og gangi þér vel. :) verður gaman að sjá ferðamennskuna lifna við.