Tenglar

20. maí 2014 | vefstjori@reykholar.is

Háskólalestin á leið til Hólmavíkur

Háskólalest Háskóla Íslands er lögð af stað í sína árlegu ferð, fjórða vorið sem lestin brunar um landið með fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Í ferðum lestarinnar er lögð áhersla á lifandi og litríka dagskrá fyrir alla fjölskylduna og allir viðburðir ókeypis. Um næstu helgi er stefnan tekin á Hólmavík en þar nemur lestin staðar í tvo daga. Dagskráin þar samkvæmt kynningu er á þessa leið:

 

Föstudaginn 23. maí sækja nemendur í 6.-9. bekk í grunnskólunum á Hólmavík og Drangsnesi námskeið í Háskóla unga fólksins í efnafræði, eðlisfræði, japönsku, stjörnufræði og vísindaheimspeki.

 

Laugardaginn 24. maí verður síðan slegið upp vísindaveislu í Félagsheimilinu á Hólmavík kl. 12 til 16 og þangað öllum boðið [ungum sem eldri í Reykhólahreppi rétt eins og heimafólki]. Þar verða meðal annars magnaðar sýnitilraunir, japanskir búningar og skrautskrift, leikir og þrautir, tæki og tól af ýmsu tagi, furðuspeglar, mælingar og alls kyns óvæntar uppgötvanir. Þjóðfræðistofa og Galdrasýningin taka líka þátt í þessu og heilmargt annað verður í boði fyrir gesti og gangandi.

 

Sprengjugengið landsfræga er með í för og sýnir kl. 12.30 og 14.30 og sýningar verða í hinu sívinsæla stjörnutjaldi á 30 mínútna fresti. Tjaldið verður í íþróttahúsinu á Hólmavík.

 

Dagskrá Háskólalestarinnar er öllum opin, aðgangur ókeypis  og allir hjartanlega velkomnir.

 

Hægt er að fylgjast með Háskólalestinni bæði á vef hennar og hérna á Facebook. Lestarstjóri er Guðrún Bachmann, gudrunba@hi.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31