Tenglar

3. apríl 2018 | Sveinn Ragnarsson

Háskólasetur Vestfjarða... starf

Fagstjóri meistaranáms, Sjávarbyggðafræði

Háskólasetur Vestfjarða leitar að kraftmiklum einstaklingi í krefjandi starf fagstjóra á sviði sjávarbyggðafræða. Við Háskólasetrið er kennd alþjóðleg, þverfagleg námsleið á meistarastigi í haf- og strandsvæðastjórnun (Coastal and Marine Management), með um 40-50 virka meistaranema ár hvert, og nú bætist við samsvarandi námsleið í sjávarbyggðafræði (Coastal Communities and Regional Development). Báðar námsleiðirnar eru í samstarfi við Háskólann á Akureyri.

Fagstjóri vinnur í litlu en framsæknu háskóla- og rannsóknarumhverfi á Ísafirði og hefur rík tækifæri til að sýna frumkvæði með það að markmiði að skapa framúrskarandi náms- og vinnuumhverfi fyrir alþjóðlegan nemendahóp. Fagstjóri skipuleggur kennslu, viðheldur tengslum við samstarfsaðila námsins og forleiðbeinir nemendum í meistaraprófsritgerðum. Starfið krefst mikillar skipulagshæfni, faglegra vinnubragða og vilja til að veita frábæra þjónustu. Starfið krefst sérlega mikillar samstarfshæfni enda eiga námsleiðirnar tvær að ganga í takt. Fagstjórinn þarf að fylgjast vel með lokaritgerðarvinnu nemenda í náinni samvinnu við leiðbeinendur og þarf til þess að hafa góða faglega yfirsýn sem og þekkingu á helstu rannsóknaraðferðum í mannvistarlandfræði, félagsvísindum og/eða hagfræði. Æskilegt er að fagstjóri hafi reynslu af að leiðbeina nemendum á meistarastigi. Til greina kemur að fagstjórinn taki að sér einhverja kennslu.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Þverfræðileg menntun og/eða rannsóknarreynsla á viðeigandi sviði
  • Meistarapróf eða doktorspróf
  • Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfni
  • Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi
  • Reynsla af rannsóknarvinnu og leiðbeiningu lokaritgerða æskileg
  • Góð enskukunnátta í ræðu og riti. Kunnátta í íslensku æskileg

 

Við mat á umsóknum er tekið mið af því hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir Háskólaseturs með hliðsjón af því að námsleiðirnar tvær þróist á svipaðan hátt. Háskólasetrið áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Nýr fagstjóri þarf að geta hafið störf í síðasta lagi á haustmisseri 2018. Upplýsingar veitir Peter Weiss, forstöðumaður, í síma 450 3045 eða weiss@uw.is

Umsóknir með ritaskrá, skrá yfir kennslureynslu og önnur akademisk störf, ef við á, sendist í tölvupósti á weiss@uw.is. Umsóknarfrestur er til og með 16.04.2018.

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31