Tenglar

15. ágúst 2014 | vefstjori@reykholar.is

Hátíð á Sauðfjársetri á Ströndum

Keppnin vinsæla í hrútadómum, þar sem keppt er í flokkum vanra og óvanra hrútaþuklara, verður á morgun, laugardag, á Sauðfjársetrinu á Ströndum (Sævangi við Steingrímsfjörð) og hefst kl. 14. Aðgangur að hátíðinni og sýningum Sauðfjársetursins er ókeypis. Ketsúpa í boði í hádeginu og kaffihlaðborð allan daginn.

 

Ný tímabundin sögusýning verður opnuð: Brynjólfur Sæmundsson og starf héraðsráðunauta.

 

Miklu ítarlegri upplýsingar um hátíðina er að finna hér á vefnum Strandir.is.

 

Sauðfjársetur á Ströndum - skemmtun fyrir alla fjölskylduna!

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2025 »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31