15. ágúst 2014 | vefstjori@reykholar.is
Hátíð á Sauðfjársetri á Ströndum
Keppnin vinsæla í hrútadómum, þar sem keppt er í flokkum vanra og óvanra hrútaþuklara, verður á morgun, laugardag, á Sauðfjársetrinu á Ströndum (Sævangi við Steingrímsfjörð) og hefst kl. 14. Aðgangur að hátíðinni og sýningum Sauðfjársetursins er ókeypis. Ketsúpa í boði í hádeginu og kaffihlaðborð allan daginn.
Ný tímabundin sögusýning verður opnuð: Brynjólfur Sæmundsson og starf héraðsráðunauta.
Miklu ítarlegri upplýsingar um hátíðina er að finna hér á vefnum Strandir.is.
► Sauðfjársetur á Ströndum - skemmtun fyrir alla fjölskylduna!