Tenglar

13. september 2018 | Sveinn Ragnarsson

Haust og vetur í Reykhólaprestakalli

Sunnudagaskólinn verður annan hvern sunnudag og byrjar 7. okt. kl. 11.00 í Reykhólakirkju. Þar munum við dansa, föndra og skemmta okkur!

 

Fermingarfræðsla verður einu sinni í mánuði á föstudögum og hófst með Vatnarskógarferð dagana 20-24. ágúst.

 

Æskulýðsfélagið hittist tvisvar í mánuði á fimmtudagskvöldum í Reykhólakirkju kl. 20.00 og brallar ýmislegt skemmtilegt saman. Fyrsti fundur er fimmtudagurinn 4. okt. kl. 20.00 í Reykhólakirkju.

 

Kirkjukórinn mun æfa kl. 20.30 öll þriðjudagskvöld í Reykhólakirkju. Allir eru hjartanlega velkomnir og það vantar í allar raddir.

 

AA-fundir verða alla föstudaga kl. 20.00 í Reykhólakirkju og boðið verður upp á sérstaka sálgæsluhópa í vetur sem miða að því að losna undan fíkn og meðvirkni.

 

Helgistundir á Barmahlíð verða kl. 14.45 annan hvern sunnudag og eru opnar öllum.

 

Opnir tímar í sálgæslu eru annan hvern fimmtudag, föstudag og laugardag og einnig er ávallt hægt að panta tíma hjá sóknarpresti.

 

Messað verður einu sinni í mánuði í kirkjum prestakallsins yfir vetrarmánuðina, auk þess sem fleiri messur verða yfir jól og páska ásamt aðventukvöldum.

 

Helgihald og safnaðarstarf er leitt af sr.Hildi Björk Hörpudóttur og tónlist og kórstjórn er í höndum Ingimars Ingimarssonar organista.

 

Góðar stundir!

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31