Tenglar

27. desember 2012 |

Hefðbundin áramótabrenna á Reykhólum

Reykhólahreppur stendur eins og endranær fyrir áramótabrennu á sorpsvæðinu fyrir neðan Reykhóla og verður kveikt í kestinum kl. 20.30 á gamlárskvöld - með þeim fyrirvara að veður leyfi. Á vegum Björgunarsveitarinnar Heimamanna í Reykhólahreppi verður flugeldasýning við brennuna, sem Bragi Jónsson annast eins og áður. Að venju selur björgunarsveitin skotelda til styrktar starfi sínu. Salan fer fram í húsi sveitarinnar við Suðurbraut á Reykhólum kl. 14-22 á sunnudag, 30. desember, og kl. 13-16 á gamlársdag.

 

Reykhólahreppur og Björgunarsveitin Heimamenn senda bestu óskir um gleðileg og slysalaus áramót.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31