15. júní 2012 |
Hefðbundin hátíðahöld 17. júní í Bjarkalundi
Kvenfélagið Katla í Reykhólahreppi stendur fyrir hátíðarhöldum á þjóðhátíðardaginn í Bjarkalundi sem fyrr. Hátíðin hefst kl.14 með ávarpi fjallkonu, skrúðganga verður að venju og að henni lokinni stjórnar Hrefna Jónsdóttir leikjum. Hoppukastalar verða á svæðinu og kvenfélagið hefur gasblöðrur og sælgæti til sölu. Hið margrómaða kaffihlaðborð Hótels Bjarkalundar verður á sínum stað.
Kvenfélagið Katla hvetur alla til að koma og gleðjast saman.