11. febrúar 2010 |
Hefur þú tíma fyrir okkar minnstu bræður og systur?
Búðardalsdeild Rauða kross Íslands, sem líka spannar Reykhólahrepp, óskar eftir sjálfboðaliðum til að gerast heimsóknavinir í Dölum og Reykhólahreppi. Hlutverk heimsóknavina er að veita félagsskap, rjúfa einsemd og félagslega einangrun fólks með heimsóknum á einkaheimili og stofnanir. Undirbúningsnámskeið verður haldið í húsnæði deildarinnar að Vesturbraut 12 í Búðardal kl. 18 miðvikudaginn 17. febrúar.
Námskeiðið er ókeypis og opið öllum áhugasömum.
Upplýsingar og skráning eru í síma 434 1639 eða 844 5858 og í tölvupósti í netfanginu oskaringi@simnet.is.