Tenglar

4. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is

Heiðursborgari Reykhólahrepps: Lilja á Grund látin

Lilja í heimsókn í fjárhúsunum á Grund. Myndin var tekin í fyrravor.
Lilja í heimsókn í fjárhúsunum á Grund. Myndin var tekin í fyrravor.

Lilja á Grund - Kristín Lilja Þórarinsdóttir - andaðist á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum í gær, 3. apríl, á nítugasta og fyrsta aldursári. Hún var heiðursborgari Reykhólahrepps og bar þá nafnbót frá því að hún varð sjötug. Lilja fæddist á Reykhólum og ól nánast allan sinn aldur hér í sveit. Lengst af var hún húsfreyja á Grund, rétt ofan við Reykhóla, en var síðari árin búsett í Barmahlíð.

 

Eiginmaður Lilju var Ólafur Sveinsson bóndi á Grund. Hann fórst í snjóflóðinu sem þar féll í janúar 1995. Synir þeirra eru Guðmundur á Litlu-Grund og Unnsteinn Hjálmar á Grund.

 

Foreldrar Lilju voru Steinunn Hjálmarsdóttir og Þórarinn G. Árnason. Hún missti föður sinn þegar hún var tæplega fimm ára en fósturfaðir hennar var Tómas Sigurgeirsson, seinni maður Steinunnar. Þau Steinunn og Tómas voru alla sína tíð búendur á höfuðbólinu Reykhólum.

 

Athugasemdir

kolbrún lára myrdal, fimmtudagur 04 aprl kl: 18:28

Blessuð sé minning góðra konu, votta öllum aðstendum samúðar

Vilhelmína Þór, fstudagur 05 aprl kl: 10:21

Lilja var einstök. Hún var ein af hvunndagshetjum þessa lands, hjartahrein og hrekklaus. Lilja elskaði sveitina sína og öll dýrin sín. Ég mun sakna hennar, bið henni blessunar og megi hún vera umvafin ljósinu eilífa. Guð blessi Guðmund, Hjálmar og aðra aðstandendur.

Sólrún Ósk, fstudagur 05 aprl kl: 13:19

Það var heiður að fá að kynnast Lilju og vinna með henni að málum Kvenfélagsins og sveitarinnar okkar. Blessuð sé minning hennar. Guðmundurog Hjálmar og fjölskyldur, mínar innilegustu samúðarkveðjur.

Harpa Eiríksdóttir, fstudagur 05 aprl kl: 13:58

Sveitin verður ekki söm án hennar Lilju okkar, hún lét ekkert stoppa sig. Blessuð sé minning hennar. Guðmunur, Hjálmar og fjölskyldur, mínar innilegustu samúðarkveðjur.

Bjarni O Halldorsson, rijudagur 09 aprl kl: 10:38

Það eru forrétindi að hafa fengið að kynnast Lilju. Blessuð sé minning hennar.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31