15. maí 2008 |
Heim til Íslands á morgun
Nú er bara einn dagur eftir og trúlega er þetta síðasta bloggið mitt frá Kaupmannahöfn... Við hlökkum alveg svakalega til að komast til Íslands og á „hótelið" okkar. Í gærkvöldi var ég eins og óþekkasti krakki, ég vildi helst komast strax til ykkar, fannst allt ómögulegt... Ég hef ekki hugmynd um hvað við verðum lengi á LSH né hvað við þurfum að vera lengi í bænum eftir það, en ég veit bara að eftirlitið verður mjög þétt fyrstu vikurnar eftir útskrift. En það verður allt miklu auðveldara á Íslandi, lítið mál að skreppa vestur og skiptast á... Við hlökkum alveg rosalega til að hitta ykkur öll, ættingjar og vinir.
– Glefsur úr bloggi Steinunnar Rasmus í dag. Sjá einnig í valmyndinni til vinstri: Blogg og heimasíður > Danmerkurferð Guðnýjar.