17. maí 2011 |
Heimaþjónusta – sumarafleysing
Reykhólahreppur auglýsir eftir starfsmanni við heimaþjónustu í sumarafleysingum frá 1. júní til 31. ágúst. Um er að ræða tvö heimili. Unnið er fjóra tíma í viku á hvoru heimili, sem samsvarar 20% vinnu. Einnig er möguleiki að ráða tvo starfsmenn í 10% vinnu hvorn.
Upplýsingar gefur félagsmálastjóri Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps í síma 451 3510 eða 842 2511.
Umsóknir berist fyrir 25. maí á skrifstofu Reykhólahrepps
eða netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is.
Reykhólahreppur
Maríutröð 5
380 Reykhólahreppur