Tenglar

29. október 2009 |

Heimsóknavinanámskeið - hefur þú tíma aflögu?

Búðardalsdeild Rauða kross Íslands, en Reykhólahreppur heyrir undir hana, óskar eftir sjálfboðaliðum til að gerast heimsóknavinir. Þeirra hlutverk er að veita félagsskap, rjúfa einsemd og félagslega einangrun fólks með heimsóknum á einkaheimili og stofnanir. Undirbúningsnámskeið verður haldið þátttakendum að kostnaðarlausu í húsnæði deildarinnar að Vesturbraut 12 í Búðardal miðvikudaginn 4. nóvember kl. 18. Upplýsingar og skráning á námskeiðin í síma 434 1639 og 844 5858 eða í tölvupósti.

 

Búðardalsdeild Rauða kross Íslands

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31