Tenglar

21. janúar 2021 | Sveinn Ragnarsson

Helga og Addi opna verslun á Reykhólum

Arnþór Sigurðsson og Helga Guðmundsdóttir, mynd HG
Arnþór Sigurðsson og Helga Guðmundsdóttir, mynd HG
1 af 2

Eins og kunnugt er var versluninni á Reykhólum lokað og rekstri Hólabúðar og 380 Restaurant hætt í byrjun október á síðasta ári. Í framhaldi af því var húsnæði verslunarinnar, sem er í eigu sveitarfélagsins auglýst til leigu. Ein umsókn barst, frá Helgu Guðmundsdóttur og Arnþóri Sigurðssyni og var gengið til samninga við þau.

 

Það er Helga sem mun stjórna versluninni, sem enn hefur ekki fengið nafn. Eins og áður hefur komið fram, var veittur styrkur á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024, til opnunar og reksturs verslunar á Reykhólum. Það mun létta róðurinn við undirbúninginn.

 

Þau stefna að formlegri opnun 1. apríl, en jafnvel fyrr ef vel gengur að koma hlutunum af stað. Aðspurð segjast þau leggja áherslu á verslunina til að byrja með, því mikilvægast er að koma henni í gang. Þau segjast hlakka mikið til að koma vestur og takast á við þetta verkefni.

 

Eitt mál er þó óleyst, en það er íbúðarhúsnæði fyrir þau sjálf. Þau eru að leita að leiguhúsnæði á Reykhólum eða næsta nágrenni.

 

 

Athugasemdir

Sáá, mnudagur 15 mars kl: 20:47

Hjálpum fleirum til betra lífs á 32 ára afmæli álfsins!
SÁÁ leitar nú að öflugu sölufólki á Reykhólar sem vill taka þátt í að selja álfinn dagana 5. til 9. maí næstkomandi.
Þátttaka í álfasölu SÁÁ er frábær fjáröflunarleið fyrir félagasamtök, hópa og einstaklinga en um leið er álfasalan víðtækasta fjáröflunarverkefni hvers árs á vegum SÁÁ. Álfurinn er boðinn til sölu um land allt og sölufólk fær úthlutað ákveðnu athafnasvæði. Einnig vantar fótgönguliða til að ganga í hús. Fín hreyfing og allir vinna!
Góð sölulaun í boði!
Þau sem eru áhugasöm hafi samband við Hilmar í síma 824-7646 eða með tölvupósti í netfangið hilmar@saa.is eða Guðnýu í síma 8985870 netfang gudny@saa.is

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31