Tenglar

23. júní 2017 | Sveinn Ragnarsson

Helgarnámskeið í Náttúrubarnaskólanum

Náttúrubarnaskólinn
Náttúrubarnaskólinn
1 af 2

Núna er sumarstarf Náttúrubarnaskólans farið alveg á fullt! Náttúrubarnaskólinn er staðsettur á Sauðfjársetrinu í Sævangi og hefur verið starfræktur síðan sumarið 2015. Hann stendur fyrir alls konar skemmtilegum námskeiðum og viðburðum fyrir náttúrubörn á öllum aldri.

 

Núna um helgina 24. - 25. júní er helgarnámskeið í Náttúrubarnaskólanum fyrir börn, með fugla- og jurtaþema. Þá er ætlunin að gera allskonar skemmtilega hluti, eins og að skoða fuglana og fjöruna, merkja teistuhreiður, mæla klakstig, búa til fuglahræður, skrifa með fjöðrum (fjaðurpennum), búa til dýrindis jurtaseyði og margt fleira. Námskeiðið er frá kl. 13 - 17 bæði laugardag og sunnudag. Það kostar kr. 6000.- og boðið eru upp á kökur og djús báða dagana, svo enginn verður svangur.

 

Í sumar verður námskeið alla fimmtudaga milli kl. 13 - 17 með fjölbreyttum þemum  sem verða auglýst jafn óðum á facebook-síðu Náttúrubarnaskólans, auk þess sem það verður náttúrubarnahátíð í Sævangi helgina 28. - 30. júlí.

 

Helstu markmið Náttúrubarnaskólans eru að sýna hvað allt í kringum okkur er í raun og veru merkilegt, hvernig nýta má náttúruna í eitthvað skapandi og skemmtilegt og um leið hvernig má vernda hana. Hann snýst um að læra um náttúruna með því að sjá, snerta og upplifa, og er fyrst og fremst útivist, fróðleikur og fjör!

 

Hægt er að skrá sig á facebook-síðu Náttúrubarnaskólans, í pósti á natturubarnaskoli@gmail.com eða hjá Dagrúnu í síma 661 2213.

Endilega fylgist með Náttúrubarnaskólanum á www.facebook.com/natturubarnaskolinn

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31