11. júní 2011 |
Helgihald á Reykhólum á hvítasunnudag
Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur verður með tvær guðsþjónustur á Reykhólum á hvítasunnudag. Kl. 14.30 verður helgistund í Barmahlíð en kl. 20 verður í Reykhólakirkju sameiginleg kvöldmessa sóknanna í prestakallinu. Viðar Guðmundsson leikur á orgelið og kór Reykhólaprestakalls leiðir sönginn.
„Fjölmennum og tökum þátt í gleðinni með Guði“, segir sr. Elína Hrund á vef Reykhólaprestakalls.