20. apríl 2011 |
Helgihald í Reykhólaprestakalli
Prestar, organistar og söngfólk hafa í mörg horn að líta á stórhátíðum kirkjunnar, ekki síður í dymbilviku og á páskum en á jólum. Verkefnaskráin að þessu sinni hjá sr. Elínu Hrund Kristjánsdóttur, sóknarpresti í Reykhólaprestakalli, er þannig:
Skírdagur:
- Hátíðarhelgistund í Barmahlíð á Reykhólum kl. 13.
Föstudagurinn langi:
- Helgistund í Garpsdalskirkju kl. 20. Lestur Píslarsögunnar og Passíusálma.
Laugardagur:
- Kirkjuskóli kl.11 í Reykhólakirkju.
Páskadagur:
- Reykhólakirkja kl. 14.
- Staðarhólskirkja kl. 16.