22. desember 2016 | Umsjón
Helgihald í Reykhólaprestakalli um jólin
Fjórar hátíðarmessur verða í Reykhólaprestakalli um jólin. Á jóladag verður messa í Reykhólakirkju kl. 11 og síðan í Garpsdalskirkju kl. 14. Annan í jólum verður messa í Staðarhólskirkju í Saurbæ kl. 14 og síðan í Skarðskirkju á Skarðsströnd kl. 17.
Sr. Hildur Björk Hörpudóttir sóknarprestur á Reykhólum messar, organisti er Steinþór Logi Arnarsson og kór Reykhólaprestakalls leiðir sönginn.
Verið innilega velkomin og gleðileg jól! segir sr. Hildur Björk.