Helgihald um jól í Reykhólaprestakalli
Hjá sr. Elínu Hrund Kristjánsdóttur sóknarpresti á Reykhólum eru sjö helgistundir og messur á dagskrá í prestakalli hennar á aðfangadag, jóladag og annan jóladag. Við jólastund barnanna og við helgistund í Barmahlíð syngur Hrefna Jónsdóttir og annast undirleik. Við messurnar á jóladag verður organisti Jón Ingimundarson en annan í jólum Viðar Guðmundsson. Félagar úr kór Reykhólaprestakalls syngja. Þessar eru jólaguðsþjónusturnar:
Aðfangadagur
► Jólastund barnanna í Reykhólakirkju kl. 14
► Dvalarheimilið Barmahlíð á Reykhólum kl. 16
Jóladagur
► Reykhólakirkja kl. 14
► Garpsdalskirkja kl. 16
Annar jóladagur
► Gufudalskirkja kl. 13
► Staðarhólskirkja í Saurbæ kl. 15
► Skarðskirkja á Skarðsströnd kl. 17
Myndin af Reykhólakirkju sem hér fylgir var tekin í júlímánuði 1962. Þá var hún ekki fullgerð. Vígslan fór fram rúmu ári síðar, þann 8. september 1963. Myndin er úr skjalasafni Húsameistara ríkisins hjá Þjóðskjalasafni Íslands.
Sjá einnig hér:
► 25.11.2012 Myndir af kirkjunum tveimur á Reykhólum (teknar 1959 og 1961).