20. desember 2011 |
Helgihald um jólahátíðina í Reykhólaprestakalli
Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur á Reykhólum verður með helgihald á mörgum stöðum í hinu víðlenda prestakalli sínu um jólin, allt frá Gufudalskirkju í vestri og til Skarðskirkju á Skarðsströnd í suðri. Guðsþjónusturnar og helgistundirnar frá aðfangadegi og fram á annan í jólum eru þessar:
Aðfangadagur
- Jólastund barnanna í Reykhólakirkju kl. 14.
- Hátíðarhelgistund á Dvalarheimilinu Barmahlíð kl. 16.
Söngur og undirleikur Hrefna Jónsdóttir.
Jóladagur
- Guðsþjónusta í Reykhólakirkju kl. 14.
- Guðsþjónusta í Garpsdalskirkju kl. 16.
Organisti Kristján Ingi Arnarsson. Félagar úr kór Reykhólaprestakalls syngja.
2. jóladagur
- Guðsþjónusta í Gufudalskirkju kl. 13.
- Guðsþjónusta í Staðarhólskirkju í Saurbæ kl. 15.
- Guðsþjónusta í Skarðskirkju á Skarðsströnd kl. 17.
Organisti Kristján Ingi Arnarsson. Félagar úr kór Reykhólaprestakalls syngja.