6. júní 2012 |
Hér má finna upplýsingar um flokkun sorpsins
Nýju gámarnir á gámasvæðið á Reykhólum koma væntanlega núna á föstudag. Blöðung um flokkun sorpsins er að finna hér (pdf) og í reitnum Tilkynningar neðst til hægri á vefnum (Endurvinnslustöðin á Reykhólum). „Áhugi íbúanna vefst ekki fyrir okkur á skrifstofunni. Hingað berast pantanir á sorpílátum og moltugerðarílátum,“ segir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri. „Fólk bíður eftir að fá leiðbeiningar og hér eru þær komnar og verða brátt komnar á öll heimili ásamt sérstökum bláum pokum sem ætlaðir eru fyrir förgun á rafhlöðum.“
Starfsmaður verður á svæðinu á þeim tímum þegar það er opið:
- Mánudaga og miðvikudaga kl. 15-17.
- Laugardaga kl. 11-13.
► Sorptunnur og moltugerðarílát á tilboðsverði