Tenglar

6. janúar 2016 |

Héraðsbókasafnið í umsjá Reykhólaskóla

Reykhólaskóli hefur tekið að sér að annast Héraðsbókasafn Reykhólahrepps, sem er í eigu sveitarfélagsins. Harpa Eiríksdóttir hefur verið bókavörður undanfarin ár, en vegna brottflutnings hennar hefur Herdís Erna Matthíasdóttir tekið við umsjón með safninu og útlánum á bókum. Harpa sem er öllum hnútum kunnug varðandi innkaup og annað verður Herdísi innan handar. Bókasafnið er opið þrisvar í viku eins og fram kemur hér fyrir neðan.

 

Safnið hefur á undanförnum árum verið til húsa í skólanum og verður það áfram, á sama stað í leikfimisalnum gamla. Bókasafn skólans og Héraðsbókasafnið eru eftir sem áður aðskilin.

 

Héraðsbókasafn Reykhólahrepps er opið þrisvar í viku sem hér segir:

Mánudaga kl. 15-17

Þriðjudaga kl. 9.10-9.50

Miðvikudaga kl. 10-10.40

 

Fólk er alveg jafnt velkomið á safnið þó að tvo af þessum þremur dögum sé það opið á skólatíma.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31