Tenglar

1. janúar 2013 |

Hlaðan sundraðist í veðurofsanum

Þakið af hlöðunni á einum stað og annað brak var um allt.
Þakið af hlöðunni á einum stað og annað brak var um allt.
1 af 5

Gömul hlaða á Skerðingsstöðum í Reykhólasveit sundraðist í ofsanum á laugardag. „Þetta er í sjálfu sér ekkert tjón, þetta var gamalt og lélegt hús sem átti að rífa, var bara ekki búið að koma því í verk“, segir Jón Árni Sigurðsson frá Skerðingsstöðum, sem búsettur er á Reykhólum. Hlaðan var úr timbri en á steyptum grunni, „og hann er brotinn eftir lætin þannig að eitthvað hefur nú gengið á“, segir Jón Árni.

 

Það eina sem hægt væri að kalla tjón á Skerðingsstöðum í óveðrinu var að nokkrir staurar í nýrri girðingu meðfram þjóðveginum gáfu sig.

 

Skerðingsstaðir eru fáeina kílómetra utan við Reykhóla. Þar er ekki lengur búskapur.

 

Myndirnar af verksummerkjum veðursins á Skerðingsstöðum sem hér fylgja tók Hrefna Jónsdóttir.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31