Tenglar

8. desember 2008 |

Hljóðbók með þjóðsögum úr Strandasýslu

Elfar Logi Hannesson.
Elfar Logi Hannesson.

Kómedíuleikhúsið á Ísafirði hefur gefið út hljóðbókina Þjóðsögur af Ströndum. Þetta er fjórða hljóðbókin sem leikhúsið gefur út en hinar fyrri eru Þjóðsögur úr Vesturbyggð, Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ og Þjóðsögur úr Bolungarvík. Sú fyrsta er uppseld og aðeins eru örfá eintök eftir af Þjóðsögum úr Ísafjarðarbæ. Hljóðbækurnar hafa hitt í mark enda er hér um að ræða vandaða útgáfu á gömlu góðu íslensku þjóðsögunum.

Strandir eru frægt þjóðsagnasvæði þar sem álfar, draugar, tröll og ýmsar furðuverur hafa verið á sveimi lengur en elstu menn muna. Á þessari hljóðbók, Þjóðsögur af Ströndum, les Elfar Logi Hannesson leikari frá Bíldudal úrval sagna af Ströndum, sem sótt er í þjóðsagnasöfn Arngríms Fr. Bjarnasonar, Helga Guðmundssonar og Jóns Árnasonar. Sögunum er skipt niður í fimm flokka: Álfa- og huldufólkssögur, Draugasögur, Galdrasögur, Tröllasögur og Ýmsar sagnir.

 

Hljóðbækur Kómedíuleikhússins má fá gegnum vefverslun á heimasíðu þess. Einnig í verslunum Eymundsson, Galdrasafninu á Ströndum, Orkusteini á Ísafirði, Vegamótum á Bíldudal og víða um landið.

 

Nú er bara að bíða þess, að Elfar Logi snúi sér að þjóðsögum úr Austur-Barðastrandarsýslu.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31