10. ágúst 2016 |
Hlutastarf við félagsstarf aldraðra í Reykhólahreppi
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps stendur fyrir félagsstarfi fyrir aldraða í Reykhólahreppi. Frá og með haustinu 2016 vantar starfsmann til að sjá um starfsemina, sem felst í umsjón með föndri og hreyfingu. Um er að ræða 20% starf. Laun samkvæmt kjarasamningum VerkVest. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst.
Umsóknir berist til Maríu Játvarðardóttur félagsmálastjóra, Maríutröð 5a, 380 Reykhólum, sem líka veitir nánari upplýsingar í síma 842-2511.