Tenglar

5. mars 2018 | Sveinn Ragnarsson

Hlynur Þór - kveðja

Hlynur Þór Magnússon
Hlynur Þór Magnússon

Í dag 5. mars, hefði Hlynur Þór Magnússon orðið 71 árs. Hann kvaddi þennan heim um síðustu jól eftir erfið veikindi.

 

Hlynur bjó á Reykhólum liðlega 11 ár, og hafði með höndum umsjón þessa vefjar um 9 ára skeið, þar til fyrir rúmu ári að hann lét af störfum vegna heilsubrests.

 

Það var mikið lán fyrir Reykhólahrepp að fá Hlyn til að stjórna þessum vef, því hann hafði áratugareynslu af blaðamennsku, kunnáttu til að nýta vefmiðil og alveg óþrjótandi samviskusemi og vandvirkni. Leikni hans í meðferð íslensks máls var víðkunn, og hann hafði líka mörg önnur tungumál á valdi sínu. Skák var eitt af áhugamálum hans og þar var kunnátta hans og geta langt fyrir ofan meðallag.

 

Það er erfiðara að taka þetta saman en greinarkornið fyrir ári. Ræður þar nokkru að þetta er gert í leyfisleysi, mig minnir hann hafi orðað það þannig að hann vildi fá að fara í friði, friði fyrir öllu tilstandi. Hlynur var hlédrægur og traustur, með ríka réttlætiskennd. Kannski ekki allra, og mátti alla ævi dragnast með svartan hund, sem er skelfilegur ferðafélagi.

 

Hann lét stundum í veðri vaka að hann gerði lítið með hrós, en ég hygg nú samt að honum hafi þótt vænt um það frá vinum.

 

  

Athugasemdir

Einar Örn Thorlacius fyrrv. sveitarstjóri Reykhólahrepps, rijudagur 06 mars kl: 11:17

Já, blessuð sé minning hans. Ég vissi ekki um andlátið. Mig minnir að það hafi verið ég í sveitarstjóratíð minni 2002-2006 sem símaði til hans á Ísafirði og fékk hann til að koma til Reykhóla. Okkur varð vel til vina og hann lét mjög hlýleg orð falla í minn garð. Hann lyfti Reykhólavefnum á æðra stig og var þar sannarlega réttur maður á réttum stað.

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir í Mýrartungu 2, rijudagur 06 mars kl: 21:59

Ég vil einnig votta Hlyni Þór virðingu mína. Ég hef verið að bíða eftir einhverri tilkynningu um lát hans. Við vorum góðir vinir og í hvert skipti sem ég leitaði til hans með eitthvað til að birta á vefnum tók hann vel við því og jafnvel betrumbætti það. Reykhólavefurinn var með þeim allra bestu á landinu í umsjón hans. Ég votta aðstandendum hans innilega samúð.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31