14. febrúar 2017 | Umsjón
Hólabúð: Opið aðeins kl. 16-18 fyrst um sinn
Síðdegis á sunnudag varð umferðarslys við Laxá í Leirársveit, þar sem tveir bílar skullu saman, jeppi og jepplingur. Í jeppanum á leið vestur voru Ása og Reynir í Hólabúð á Reykhólum, Ólafur Garðar Reynisson og tíkin Írena. Ása og Reynir hlutu beinbrot en eru samt að mestu rólfær, ungi pilturinn slapp betur og tíkin alveg. Þau komu vestur á Reykhóla í dag og þau Ása og Reynir afgreiddu í búðinni í tvo tíma.
Af ofangreindum ástæðum verður Hólabúð opin aðeins kl. 16-18 fyrst um sinn. Það verður síðan endurskoðað þegar efni standa til.
Ef nauðsyn ber til varðandi eitthvað sem vantar úr búðinni, þá vill Reynir láta gsm-símann sinn fylgja: 897-1317.
Sigurbjörn Arnar Jónsson......Sibbi, mivikudagur 15 febrar kl: 05:11
Þessi frétt er ansi víðlesin í Keflavík en gott mál að fór þó ekki verr en þetta.
Gangi ykkur allt í haginn elskurnar.