Tenglar

2. apríl 2015 |

Hólabúð: Verið að sækja mjólkina

Reynir kaupmaður í Hólabúð á Reykhólum lagði af stað suður núna fyrir hádegið til að sækja mjólk, vegna þess að sendingin sem átti að koma brást. Mjólkurlaust er orðið í búðinni en þegar Reynir kemur til baka seint í dag rætist úr því. Opið átti að vera til kl. 18 en Reynir reiknar með því að út af þessu verði opið eitthvað lengur. Síminn í Hólabúð er sem fyrr 434 7890.

 

Búðin verður lokuð á morgun, föstudaginn langa, en opin kl. 12-16 á laugardag.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31