Tenglar

15. júní 2012 |

Hólakaup: Opið frá tíu til tíu (sjá þó fyrirvara)

Biðröð eftir bensíni við Hólakaup.
Biðröð eftir bensíni við Hólakaup.

Frá og með deginum í dag og til 12. ágúst er verslunin Hólakaup á Reykhólum opin alla sjö daga vikunnar frá tíu á morgnana til tíu á kvöldin. Þó með þessum fyrirvara: Reynslan sýnir að yfirleitt er opnað miklu, miklu fyrr á morgnana, hvað sem hinum formlega afgreiðslutíma líður. Allir eru velkomnir í Hólakaup hvort heldur klukkan er sjö, átta eða níu að morgni ef Eyvi er kominn til vinnu á annað borð eða hans fólk.

 

Yfir sumarið þjónar búðin tveimur hópum viðskiptavina, annars vegar heimafólki í héraði og hins vegar ferðafólki.

 

Sem betur fer er ekki mikið um biðraðir eftir bensíni við verslunina Hólakaup. Samt kemur það fyrir eins og sjá má á myndinni. Upplýsingamiðstöð ferðafólks og Báta- og hlunnindasýningin (húsið vinstra megin) og Hólakaup eru rétt við flugbrautarendann á Reykhólum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31