30. ágúst 2010 |
Hólakaup: Sumarafgreiðslutíminn kvaddur
Nú hallar sumri og styttri afgreiðslutími í versluninni Hólakaupum á Reykhólum tekur gildi í dag. Í sumar hefur verslunin verið formlega opin frá kl. tíu að morgni til kl. tíu að kvöldi alla daga vikunnar. Það segir þó ekki alla söguna vegna þess að í flestum tilvikum hefur Eyvi kaupmaður verið mættur og búinn að opna um eða upp úr sjö á morgnana. Frá og með deginum í dag verður verslunin opin frá mánudegi til laugardags kl. 10-18 og á sunnudögum kl. 14-17.
Því er við að bæta, að í vetur mun verslunin Hólakaup bjóða og hafa umsjón með leikjatímum í íþróttahúsinu á Reykhólum á sunnudögum kl. 11-12. Fyrsti tíminn verður á sunnudag, 5. september. Þar eru allir velkomnir, ungir sem aldnir, að skemmta sér saman.
Sjá einnig:
05.05.2010 Nýir eigendur Hólakaupa á Reykhólum