2. ágúst 2008 |
Hólakaup á Reykhólum: Opið eins og venjulega
Verslunin Hólakaup á Reykhólum er opin eins og venjulega núna yfir helgina. Opið er til kl. 22 í kvöld, laugardag, en á morgun (sunnudag) og mánudag er opið frá kl. 9 til 20. Mikill straumur ferðafólks hefur verið í búðinni í dag enda fæst þar nánast allt sem þarf á ferðalagi.